Kynningarfundur um IPMA vottun.
Á vegum Norðurlandsdeildar VFÍ og VSF.
Stjórn Norðurlandsdeildar VFÍ hefur verið í viðræðum við Verkefnastjórnunarfélagið um að halda kynningarfund fyrir IPMA vottun á Akureyri fyrir félagsmenn og aðra áhugasama. Krafan um IPMA vottun í verkefnastjórnun fer ört vaxandi í okkar geira.
Föstudaginn 27. apríl mun Verkefnastjórnunarfélagið standa fyrir kynningarfundi og er stefnan að bjóða uppá vottunarpróf á Akureyri síðar á þessu ári. Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér þetta tækifæri til að kynna sér IPMA vottun í verkefnastjórnun. Félagsmenn mega einnig gjarnan bjóða með sér öðrum áhugasömum.
Kynningin verður haldin 27. apríl hjá Símey, Þórsstíg , Akureyri kl. 12:00 – 13:00.
Allir velkomnir, en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig: https://www.vsf.is/is/vidburdir