Kynning á LinkedIN
Ráðningar og sýnileiki með LinkedIN.
Á Samlokufundi þriðjudaginn 7. mars nk. kl. 12-13 munu Geirlaug Jóhannsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi og Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, mannauðsráðgjafi hjá EFLU, fjalla um LinkedIn. Í erindinu verður fjallað um hvernig LinkedIn er notað við ráðningar og hvernig hægt er að nýta þennan miðil til að gera sig meira sýnilegan sem sérfræðingur á tilteknu sérsviði.
Félagsmenn eru hvattir til að nýta þetta tækifæri til að kynna sér þennan miðil og fá upplýsingar um hvernig fyrirtæki og aðilar í ráðningum nota LinkedIn.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Streymt verður frá fundinum og verður hægt að nálgast hlekkinn á vef VFÍ og á Facebooksíðu félagsins . Í boði verður að senda spurningar í gegnum spjallið á rásinni á meðan á viðburðinum stendur. (Ef smellt er á Vimeo merkið neðst til hægri, birtist skjár með spjallinu hægra megin).
Að venju fá félagsmenn VFÍ sem mæta á staðinn ókeypis samlokur og drykki.
Verið velkomin!