Mat á áhrifum framkvæmda á vatnshlot
Vatnaáætlun, innleiðing og framkvæmd.
Fræðslufundur um mat á áhrifum framkvæmda á vatnshlot
Miðvikudaginn 25. febrúar kl. 9:00-15:30 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.
Skipuleggjendur: Umhverfis- og orkustofnun, Hafrannsóknastofnun og Veðurstofa Íslands í samstarfi við Verkfræðingafélag Íslands. - Húsið opnar 8:30.
Vinsamlegast skráið ykkur þannig að hægt sé að áætla veitingar. (Hlekkur neðst).
Um fundinn
Á fundinum munu sérfræðingar Umhverfis- og orkustofnunar, Hafró og Veðurstofunnar fara yfir ýmis atriði er varða vatnaáætlun, innleiðingu hennar og framkvæmd. Fjallað verður um hugtök á borð við vistfræðilegt ástand yfirborðsvatnshlota, magnstöðu og efnafræðilegt ástand grunnvatnshlota, auk líffræðilegra, eðlisefnafræðilegra og vatnsformfræðilegra gæðaþátta sem notaðir eru til að meta vistfræðilegt ástand yfirborðsvatnshlota. Einnig verður uppbygging og framkvæmd áhrifamats í vatnshlotum kynnt.
Umhverfis- og orkustofnun, í samstarfi við 21 innlenda samstarfsaðila, stýrir umfangsmiklu innleiðingarverkefni, sem styrkt er af LIFE áætlun Evrópusambandsins (https://icewater-life.is/). Verkefnið snýr að því að hraða innleiðingu vatnaáætlunar.
Streymt verður frá fundinum. (Streymið er opið og þarf ekki að skrá sig sérstaklega. Hlekkur verður á vfi.is og uos.is).
Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst:
Fræðslufundur um mat á áhrifum framkvæmda á vatnshlot - Skráning – Fill in form
