Notendamiðuð greining á heilnæmi birtuumhverfis
Morgunfundur Kvennanefndar VFÍ - Allir velkomnir.
Allir velkomnir! – Skráning sjá neðst.
Kvennanefnd VFÍ verður með skemmtilegan morgunfund, miðvikudaginn 21. nóvember kl. 8:30 í sal VFÍ, Engjateig 9.
María Ámundadóttir stofnandi OCULIGHT flytur erindi þar sem hún mun fjalla um sögu fyrirtækisins og hvernig nýta megi betur birtu og áhrif hennar á heilsu og vellíðan fólks í byggingum.
Allir velkomnir, léttar veitingar í boði. Hlökkum til að sjá sem flesta!
Vinsamlega skráið þátttöku með því að senda tölvupóst (tilkynningar@verktaekni.is) eða hringja til skrifstofu VFÍ í síma 535 9300.