Rýnisferðin 2022 - EXPO - Dubai - Abu Dhabi

Einstakt tækifæri í glæsilegri ferð.

  • 19.2.2022 - 27.2.2022

Það verða 180 ferðalangar sem leggja upp í Rýnisferðinni, sem er sú 22. í röðinni. Eins og áður reyndist mikill áhugi á ferðinni. Ferðanefndin hefur unnið hörðum höndum að skipulagningu og allt löngu klárt þó Covid hafi á stundum sett strik í reikninginn. 

Streymi á kynningarfund 27. janúar: 

Hlekkur á streymi.

RÝNISFERÐIR VFÍ fyrir tæknifræðinga og verkfræðinga sem hófust 1998 á vegum Tæknifræðingafélags Íslands hafa frá upphafi notið mikilla vinsælda. Nú er stefnt á 22. ferðina og að þessu sinni verður farið til Dubai þar sem megintilgangur ferðarinnar er að heimsækja EXPO 2020 heimsýninguna sem verður opin frá 1. október 2021 - til 31. mars 2022.

Búist er við 20 milljón gestum á sýninguna. Opnun sýningarinnar var frestað sl. haust vegna Covid faraldursins. Auk EXPO verða skoðuð nokkur af áhugaverðustu mannvirkjum heims sem hafa verið reist í Dubai og Abu Dhabi á síðustu árum. Eins og áður er ferðin opin öllum félagsmönnum VFÍ ásamt mökum. Gert er ráð fyrir allt að 150 manns í þessa ferð.

Upplýsingar um ferðina.