Nýi Landspítali: Rörpóstur, sorp- og línkerfi
Hönnun, virkni og innkaupaferill.
Á Samlokufundi miðvikudaginn 24. febrúar kl. 12 - 13 munu Ingólfur Þórisson verkefnastjóri og Gísli Georgsson verkefnastjóri fjalla um rörpóst, sorp- og línkerfi Nýja Landspítala.
Fundurinn verður í vefútsendingu og geta þátttakendur sent inn fyrirspurnir og tekið þátt í spjalli.
Samlokufundir um framkvæmdir við Nýja Landspítala eru samstarfsverkefni Verkfræðingafélags Íslands, Endurmenntunar HÍ og Hringbrautarverkefnisins.
Um flokkun sorps og líns í nýjum meðferðarkjarna.