Raforkudreifing á Norðurlandi
Samlokufundur á vegum Norðurlandsdeildar VFÍ.
Á Samlokufundi fimmtudaginn 11. maí, kl. 12-13, mun Sverrir Jan Norðfjörð fjalla um stöðuna í flutningi raforku milli landshluta og hvaða leiðir Landsnet hefur skoðað í því sambandi. Sverrir er deildarstjóri kerfisþróunar Landsnets.
Í upphafi fundar verður tilkynnt um styrkveitingu NVFÍ til Hetjanna, félags langveikra barna á Norðurlandi.
Fundurinn verður á Icelandair Hotel að Þingvallastræti 23.
Að venju verður félagsmönnum boðið upp á samlokur og drykki, aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir.
Til að áætla veitingar eru félagsmenn beðnir um að senda skráningu á netfangið nvfi.skraning@gmail.com eigi síðar en þriðjudaginn 9. maí.
Allir velkomnir.