Rósaboð Kvennanefndar VFÍ

Miðvikudaginn 4. mars í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 kl. 17.

  • 4.3.2020, 17:00 - 19:00, Engjateigur 9
  • Rósir og fáni VFÍ

Kvennanefnd Verkfræðingafélags Íslands heldur hið árlega Rósaboð miðvikudaginn 4. mars næstkomandi kl. 17-19 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.

Konum, sem útskrifuðust með próf í verkfræði eða tæknifræði á árinu 2019, er færð rós í tilefni áfangans. Einnig er þetta tækifæri til að fagna því að um þessar mundir eru 20 ár síðan Kvennanefnd Verkfræðingafélagsins var stofnuð.

Að venju verður fjölbreytt dagskrá í boði, meðal annars mun Sunna Björg Helgadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs HS Orku halda erindi, leikin verður lifandi tónlist og boðið upp á léttar veitingar.

Rósaboðið er kjörinn vettvangur til þess að kynnast félaginu betur, hitta aðrar konur úr sömu starfsstétt, stækka tengslanetið og gæða sér á gómsætum veitingum!

Einnig vísum við á www.facebook.com/kvennanefndvfi fyrir nánari upplýsingar.

Skráning.

Kvennanefnd VFÍ.