Samlokufundur - Borgarlínan og samgöngusáttmáli
Byggingastaðlaráð í samstarfi við Verkfræðingafélag Íslands.
Byggingarstaðlaráð í samstarfi við Verkfræðingafélag Íslands stendur fyrir opnum kynningar- og fræðslufundi í Verkfræðingahúsi fimmtudaginn 28. nóvember að Engjateigi 9, Reykjavík. Fundurinn stendur frá kl. 12:00 til 13:00.
Borgarlína höfuðborgarsvæðisins – Samgöngusáttmálinn
Hrafnkell Á. Proppé svæðisskipulagsstjóri á Verkefnastofu Borgarlínu mun flytja erindi um hugmyndafræði og undirbúning á Borgarlínu fyrir höfuðborgarsvæðið. Eins mun Hrafnkell gera stuttlega grein fyrir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins um uppbyggingu samgönguinnviða og almenningssamgangna.
Að loknu erindi verður boðið upp á fyrirspurnir og umræðu.
Gestir fá samlokur og drykki í boði VFÍ.