Samlokufundur: ÍA á skjálftasvæðum í Tyrklandi
Á Samlokufundi þriðjudaginn 18. apríl nk. kl. 12-13 munu verkfræðingarnir Sólveig Þorvaldsdóttir og Erlendur Birgisson segja frá starfi Íslensku Alþjóðasveitarinnar (ÍA) á skjálftasvæðunum í Tyrklandi í febrúar síðastliðnum.
Hópurinn samanstóð af sérfræðingum í aðgerðastjórnun aðgerða og stoðhóp (verkfræðingar, læknir og búðir). Sólveig leiddi íslenska hópinn en hún hefur afar mikla reynslu af stýringu og samhæfingu í alþjóðlegum aðgerðum. Erlendur starfaði með ÍA við björgunaraðgerðir á Haiti 2010.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og í beinu streymi. Í boði er að senda spurningar í gegnum spjallið á rásinni á meðan á viðburðinum stendur. (Ef smellt er á Vimeo merkið neðst til hægri, birtist skjár með spjallinu hægra megin).
ÍA á skjálftasvæðum í Tyrklandi.
Myndin hér að ofan er fengin á Facebooksíðu Landsbjargar og er af íslenska hópnum ásamt tveimur túlkum sem aðstoðuðu hópinn.