Samlokufundur: Leiðtogafræðin og núvitund í anda Google
Ný vídd í stjórnendafræðum.
Á Samlokufundi fimmtudaginn 18. janúar mun Dr. Þórður Víkingur Friðgeirsson véla- og rekstrarverkfræðingur segja frá leiðtogafræðum og núvitund í anda Google.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13.
Mindful Leadership er ný vídd í stjórnendafræðum sem miðar að aukinni meðvitund og hæfni til að halda einbeitingu og skapa rými til forystu í flóknu og krefjandi starfsumhverfi nútímans.
Mörg af öflugustu fyrirtækjum heims á borð við Google, Apple, LinkedIn, eBay og Harvard Business School hafa tekið Mindfulness í þjónustu sína með árangri sem eftir er tekið um allan heim. Í fyrirlestrinum verður sérstaklega litið til Google sem rekur þjálfunardagskrá fyrir starfsfólk sitt sem kallast SYI (Search Inside Yourself).
Dr. Þórður Víkingur Friðgeirsson hefur unnið við stjórnun á einhvern hátt allan sinn starfsferil ekki síst verkefnastjórnun. Meðal þeirrar stjórnunarreynslu sem Þórður hefur aflað sér má nefna að hann var forstöðumaður hjá Fiskistofu í 4 ár, stjórnaði stórum innleiðingarverkefnum á sviði upplýsingartækni hjá Tæknivali hf. í 2 ár og var framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Tæknivali í 3 ár. Þá var hann stjórnunarráðgjafi hjá bandaríska ráðgjafafyrirtækinu Corporate Lifecycles ehf. í 3 ár og hefur einnig rekið eigin verkfræðistofu og ráðgjafafyrirtæki, Midpoint Consulting ehf, frá 1993 fram á þennan dag. Þórður hefur verið stjórnunarráðgjafi hjá fleiri en 100 fyrirtækjum, stofnunum og ráðuneytum.
Frá 2006 gefur Þórður starfað sem lektor við Háskólann í Reykjavík (HR). Helstu kennslu- og rannsóknarsvið eru á sviði verkefnastjórnunar og áhættustjórnunar. Þórður er höfundur þriggja vinsælla bóka um stjórnun og rekur rannsóknarsetrið CORDA við HR.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13.
Félagsmenn VFÍ fá ókeypis samlokur og drykki. Aðrir greiða sanngjarnt verð fyrir.
Ath. Vegna framkvæmda við Engjateig bendum við á bílastæði á Blómavalsreitnum. Göngustígur er frá stæðinu að Verkfræðingahúsi.