Samlokufundur: Styrkleikar í lífi og starfi
Rifjum upp hæfni og getu, - eflum seiglu.
Á Samlokufundi miðvikudaginn 6. nóvember kl. 12-13 mun Guðrún Snorradóttir stjórnendaþjálfi fjalla um leiðir til að rifja upp hæfni og getu, efla seiglu og kynnast verkfærum til að mæta áskorunum og standa með sjálfum sér.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Streymt verður frá fundinum. Fyrir þau sem mæta á staðinn verða samlokur og drykkir í boði VFÍ.
Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, er einstaklega skemmtilegur og hæfur fyrirlesari með mikla reynslu.
Hvetjum félagsmenn til að líta upp frá amstri dagsins og hlusta á áhugaverðan og gagnlegan fyrirlestur!