Samtal um þjóðaröryggi: Fjölþáttaógnir

Ráðstefna um fjölþáttaógnir (e. hybrid threats).

  • 27.2.2020, 13:00 - 17:00, Hátíðasalur Háskóla Íslands.
  • graenir_stafir

Þann 27. febrúar n.k. stendur Þjóðaröryggisráð fyrir ráðstefnu um fjölþáttaógnir (e. hybrid threats) í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 13 - 17. Erlendir og innlendir sérfræðingar munu taka þátt.

Fjallað verður um fjölþáttaógnir í víðum skilningi. Hvað felst í hugtakinu? Hvernig getum við aukið varnir gegn fjölþáttaógnum, verndað lýðræðisleg grunngildi og styrkt áfallaþol samfélagsins gagnvart fjölþáttaógnum? Ráðstefnan fer fram á ensku og er opin öllum á meðan húsrúm leyfir. 

Þjóðaröryggisráð í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Verkfræðingafélag Íslands, Blaðamannafélag Íslands, Fjölmiðlanefnd, Kvikmyndamiðstöð, Varðberg, Utanríkisráðuneytið, Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytið, Dómamálaráðuneytið, Persónuvernd, Póst- og fjarskiptastofnun, Ríkislögreglustjóra, Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Nefnd um samningu heildarlaga um starfsemi stjórnmálaflokka. 

Svana Helen Björnsdóttir formaður VFÍ mun stýra einum hluta ráðstefnunnar.

Dagskrá ráðstefnunnar.