Síld og Sushi - Sameining RVFÍ og 0Ω

Höldum upp á sameiningu RVFÍ og 0Ω.

  • 13.2.2026, 17:00 - 20:00, Verkfræðingahús, Engjateigi 9

Verkfræðingafélag Íslands býður til veislu þar sem Rafmagnsverkfræðingadeild VFÍ og 0Ω – sameinast. Markmiðið er að rækta tengsl, efla faglegt samtal og byggja upp öflugan vettvang í rafmagnsverkfræði á Íslandi. - Skráning hér.

Rafmagnsverkfræðingadeild VFÍ var stofnuð 7. febrúar 1941. Hlutverk deildarinnar er að efla kynningu og samstarf meðal rafmagnsverkfræðinga, og síðar rafmagnstæknifræðinga, styðja við fagþekkingu félagsmanna í rafmagnsverkfræði og skyldum greinum.

Starf deildarinnar var lengst af mjög öflugt og má þar nefna viðburði á borð við Síldarkvöld, þar sem rafmagnsverkfræðingar komu saman yfir síld og snafs.

0Ω („ekki við nám“) sækir innblástur í VIR, líflegt og öflugt nemendafélag rafmagns- og tölvuverkfræðinema við Háskóla Íslands, og leggur áherslu á tengslamyndun og lifandi samfélag eftir útskrift.

Með því að bjóða upp á síld og sushi sameinum við gamla og nýja tímann og sköpum skemmtilegan vettvang fyrir yngri og eldri rafmagnsverkfræðinga og -tæknifræðinga. Markmiðið er að rækta tengsl og efla faglegt samtal og byggja upp vettvang fyrir rafmagnsverkfræði og -tæknifræði á Íslandi.

Endilega verið með frá byrjun, eflið tengslanetið og takið þátt í nýjum kafla í sögu rafmagnsverkfræðinga og -tæknifræðinga innan VFÍ.

Skráningarhlekkur: https://forms.gle/LbxudhLmBrwRwBtf7