Skoðunarferð Öldungadeildar VFÍ
Búrfellsstöð II og virkjunarsvæði Búrfellsstöðva.
Öldungadeild VFÍ fer í skoðunarferð Búrfellsstöð II og á virkjanasvæði Búrfellsstöðva fimmtudaginn 3. október.
Það er
fullbókað í ferðina og við biðjum þátttakendur að ganga frá greiðslu sem fyrst.
Banki:
0334-26-000187
Verkfræðingafélag Íslands
Kt. 680269-6299
Kr. 2.500.- pr. mann.
Munið að senda tilkynningu á netfangið: gurry@verktaekni.is
Dagskrá ferðarinnar
09:00 Móttaka og léttur morgunmatur í Lóninu í húsnæði Landsvirkjunar Háaleitisbraut 68.
Kynning á Búrfellsstöð 2 og sýnt öryggismyndband.
09:30 Brottför frá Háaleitisbraut með rútu.
11:30 Búrfellsstöð II – vélarsalur skoðaður. Búrfellsstöð skoðuð frá sýningarpalli. (Aðkomugöng og vélasalur skoðaður). Georg Pálsson stöðvarstjóri og Guðmundur Björnsson taka á móti hópnum.
12:40 Hádegismatur í boði Landsvirkjunar.
13:30 Brottför frá Búrfellsvirkjun.
13:45 Keyrt að Hafinu og vindmyllur skoðaðar.
14:00 Brottför frá Hafinu í Sogsvirkjanir.
15:30 Orkusýning í Ljósafossstöð. Léttar veitingar í boði Landsvirkjunar.
17:30 Haldið heim á leið.
Stjórn Öldungadeildar VFÍ.
Pétur Stefánsson, formaður, Páll Sigurjónsson, Steinar Friðgeirsson, Bergþór Þormóðsson og Magnús Bjarnason.