AUSTURLAND: ChatGPT frá A til Ö.

Hagnýting gervigreindar í vinnu og einkalífi.

  • 12.5.2025 - 14.5.2025, 13:00 - 16:00, Egilsstaðir

AUSTURLAND - Námskeið: ChatGPT frá A til Ö
Hagnýting í vinnu og einkalífi.

ATHUGIÐ BREYTT TÍMASETNING:

Námskeiðið verður mánudaginn 12. maí og miðvikudaginn 14. maí (Kl. 13:00 - 16:00 báða dagana). 
Verður í fundasal á Berjaya Hótel Hérað á Egilsstöðum. 

Hér fyrir neðan er skráning á námskeiðið. 

Námskeiðið er niðurgreitt og kostar kr. 25.000.- (Algengt verð er 69.500.-) það er styrkhæft hjá starfsmenntunarsjóðum VFÍ. (Miðað við áunnin einstaklingsbundin réttindi).

  1. Greiða þarf þátttökugjaldið, kr. 25.000.- eigi síðar en 9. maí.
  2. Bankaupplýsingar: 0334-26-000178

Kt: 680269-6299

Skýring: Gervigreind.

Þátttakendur verða að mæta með fartölvu og hafa greidda áskrif að ChatGPT áður en þeir mæta á námskeiðið.

Eftirfarandi hlekkur inniheldur undirbúningslista og leiðbeiningar fyrir þátttakendur:

https://drive.google.com/file/d/1W5tHPMhOJ4ouQyu3EqvkYL1s61ijggoF/view?usp=sharing

Lýsing á námskeiðinu

Lærðu að nota gervigreind á skilvirkan og hagnýtan hátt til að ná árangri bæði í vinnu og einkalífi. Þetta námskeið miðar að því að byggja upp sjálfstraust og þekkingu þátttakenda á notkun ChatGPT.

Þátttakendur læra að nota gervigreind til að leysa raunveruleg verkefni og kynnast fjölbreyttum möguleikum þessarar byltingarkenndu tækni.

Fyrri daginn er lagður grunnur að spunagreind og gefin yfirsýn af notendaviðmóti ChatGPT og ýmis dæmi og æfingar lögð fyrir til að kynna einfalda notkun þess. Rætt er um rétt og gagnleg viðhorf gagnvart tækninni, hvernig má innleiða hana í ýmis verkefni og helstu takmarkanir hennar.

Seinni daginn er svo farið yfir í flóknari verkefni og notkun ýmissa tóla í ChatGPT. Farið verður yfir praktíska greiningu og notkun á myndefni, snjallsímaforritið, upplýsingaleit, gagnagreiningu og gerð sniðmáta og flóknari æfingar.

Kennslan er leidd af starfsmanni frá Javelin AI, fyrirtæki sem sérhæfir sig í fræðslu og ráðgjöf tengdri gervigreind. Starfsmenn Javelin ehf hafa mikla reynslu að baki í hagnýtingu gervigreindar og hafa haldið fyrirlestra og námskeið á sviði gervigreindar hjá fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum síðan 2023.

Hverjum hentar námskeiðið?

Þetta námskeið er hannað fyrir fjölbreyttan hóp einstaklinga sem hafa áhuga á gervigreind og vilja læra að nýta hana. Námskeiðið er sérstaklega miðað að byrjendum og þeim sem vilja læra að nýta ChatGPT og helstu tól þess á fjölbreytta vegu. Það er þó ekki ætlað þeim sem þegar hafa mikla sérþekkingu og vilja kafa dýpra í tæknileg atriði.

Um höfund námskeiðsins

Sverrir Heiðar Davíðsson er hugbúnaðarverkfræðingur og stofnaði fyrirtækið Javelin ehf., sem sérhæfir sig í fræðslu, ráðgjöf og verkefnum sem sn að gervigreind.

Sverrir er með M.Sc. í gervigreind og gagnavísindum frá DTU og B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá HÍ. Hann er með um sex ára af reynslu með gervigreind að baki og hefur haldið fyrirlestra og kennt námskeið um hagnýtingu gervigreindar hjá Endurmenntun HÍ og fjölmörgum fyrirtækjum síðan 2023.


Skráning á viðburð

Þátttakandi

Til að fyrirbyggja ruslpóst: