Kynningarfundur: Rýniferðin 2025 - Japan
Tokyo – Kyoto - Osaka (Expo 2025)
ATH! FULLBÓKAÐ ER Í SALINN OG EKKI HÆGT AÐ SKRÁ SIG. - STREYMIÐ ER OPIÐ SJÁ FYRIR NEÐAN.
RÝNIFERÐIR fyrir tæknifræðinga og verkfræðinga sem hófust árið 1998 á vegum Tæknifræðingafélags Íslands hafa frá upphafi notið mikilla vinsælda. Nú er stefnt á 25. ferðina og að þessu sinni er ferðinni heitið til Japan dagana 28./29. ágúst - 13./14. september.
KYNNINGARFUNDUR verður þriðjudaginn 12. nóvember kl. 17:00 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, STREYMT verður frá fundinum. Farið verður yfir drög að dagskrá ferðarinnar, flugtíma, hótelgistingar, skoðunarferðir, EXPO 2025 o.fl. - Það er fullt í salinn - hvetjum áhugasama til að fylgjast með í streymi, ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ SKRÁ SIG.
Streymi frá kynningarfundi - Rýniferðin 2025.
Gert er ráð fyrir allt að 200 þátttakendum í ferðina sem er fyrir félagsmenn VFÍ og maka þeirra eða annan ferðafélaga.
Ítarlegar upplýsingar um ferðina verða birtar á vef VFÍ fimmtudaginn 14. nóvember og skráning hefst þriðjudaginn 3. desember kl. 9:00 á netfangið: skrifstofa@verktaekni.is
SKRÁNINGAR FYRIR ÞANN TÍMA ERU EKKI GILDAR.
Fararstjórn: Jóhannes Benediktsson, Eva Yngvadóttir og Hreinn Ólafsson.
KYNNINGARFUNDUR: ATHUGIÐ. ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ TAKA Á MÓTI FLEIRUM Í SALINN. (Skrifað 16:52 föstudaginn 1. nóvember).
ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ SKRÁ SIG Í STREYMIÐ.