FULLBÓKAÐ Námskeið í launaviðtölum - 13. maí

Fullbókað er á námskeiðið og ekki hægt að skrá sig.

  • 13.5.2025, 15:00 - 18:00, Verkfræðingahús, Engjateigi 9
  • Stigi.pmjpg

ATHUGIÐ - FULLBÓKAÐ ER Á NÁMSKEIÐIÐ OG EKKI HÆGT AÐ SKRÁ SIG.



Þriðjudaginn 13. maí kl. 15:00-18:00 verður haldið námskeið í launaviðtölum. Námskeiðið er ókeypis. Námskeiðið verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og er skráningarform hér fyrir neðan.

Góð aðsókn hefur verið á námskeið VFÍ í launaviðtölum. Leiðbeinandi er Hlynur Atli Magnússon, ráðgjafi hjá Hagvangi. Hann er með meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og BS gráðu í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri.

Um námskeiðið og launaviðtöl

Góður undirbúningur og færni í samningatækni er lykilinn að árangri í launaviðtali. Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig þátttakendur geta undirbúið sig sem best fyrir launaviðtal. Kynnt verða ýmis hagnýt ráð varðandi samningatækni sem geta hjálpað félagsmönnum að ná enn betri árangri í launaviðtölum.

Starfsmaður hefur samningsbundinn rétt á viðtali við yfirmann sinn einu sinni á ári um störf sín og mögulega leiðréttingu á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali á að veita það innan tveggja mánaða og niðurstaða viðtalsins á að liggja fyrir innan mánaðar.

Í launaviðtali er ekki einungis verið að semja um laun heldur einnig um vinnuframlag og mikilvægi starfsmannsins og horft til þeirra þátta er snúa að starfsumgjörð viðkomandi.

Launaviðtalið þarf því ekki eingöngu að snúast um launin. Sumir kjósa að semja um önnur starfskjör eins og sveigjanlegan vinnutíma, fleiri orlofsdaga, námsstyrk, ferðastyrk, bifreiðastyrk o.fl.

Hlynur Atli Magnússon er ráðgjafi og meðeigandi hjá Hagvangi og vinnur þar við ráðningar og mannauðsráðgjöf. 

Námskeiðið er ókeypis. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.
Mikilvægt að tilkynna um forföll á netfangið: kjaramal@verktaekni.is eða í síma: 535 9300.



ATHUGIÐ FULLBÓKAÐ ER Á NÁMSKEIÐIÐ OG EKKI HÆGT AÐ SKRÁ SIG!


Skráning á viðburð

Þátttakandi

Til að fyrirbyggja ruslpóst: