Skýjalausnir – Tæknigeirinn, þjónusta og öryggi gagna
Skýjalausnir fyrir ríkið til umsagnar í Samráðsgáttinni.
Skýjalausnir – Áhrif á tæknigeirann, þjónustu og öryggi gagna
Samlokufundur Verkfræðingafélags Íslands mánudaginn 6. september kl. 12 – 13.
Í boði verður að senda spurningar í gegnum spjallið á rásinni á meðan á viðburðinum stendur. (Ef smellt er á Vimeo merkið neðst til hægri, birtist skjár með spjallinu hægra megin).
Drög að stefnu um notkun skýjalausna fyrir ríkið er í Samráðsgátt stjórnvalda til rýni og umsagna frá almenningi, fagfélögum og fyrirtækjum.
Stefnunni er ætlað að vera leiðarljós fyrir ríkisstofnanir í skýjavæðingu og mun hafa áhrif á tæknigeirann næstu ár og hafa áhrif á þjónustu og öryggi gagna ríkisins.
Á Samlokufundinum gefst færi á að fá innsýn í stefnuna, öðlast skilning á markmiðum hennar og gefa endurgjöf. Einar Gunnar Guðmundsson, sérfræðingur í stafrænum umbreytingum hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti kynnir stefnuna. Með honum verður Tryggvi Jónsson, upplýsingatækniráðgjafi. Að kynningu lokinni verða umræður og fyrirspurnir.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi Engjateigi 9. Félagsmenn eru velkomnir á staðinn meðan húsrúm leyfir. – Boðið verður upp á samlokur og drykki. Það þarf EKKI að skrá þátttöku.