Snow 2019
Ráðstefna um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum.
Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ), stendur að ráðstefnunni „International Symposium on Mitigation Measures against Snow Avalanches and other Rapid Gravity Mass Flows“ á Siglufirði dagana 3. - 5. apríl 2019.
Ráðstefnuna munu sækja innlendir og erlendir fræðimenn sem eru í fremstu röð á þessu sviði. Undirbúningsnefnd er skipuð fulltrúum frá VFÍ, Veðurstofunni, Umhverfisráðuneytinu og þremur ráðgjafarfyrirtækjum. Ofanflóðasjóður, Jöklarannsóknafélagið, Samtök sveitarfélaga og Háskóli Íslands eru einnig aðilar að ráðstefnunni.