Staða hljóðmála á Íslandi
Ráðstefna Trivium hljóðráðgjafar og Verkfræðingafélags Íslands.
Ráðstefna miðvikudaginn 7. nóvember 2018 frá kl. 13:00 til 16:00 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.
Ráðstefnustjóri: Þorbergur Karlsson, verkfræðingur hjá VSÓ.
Í tilefni af 15 ára afmæli Trivium ráðgjafar er í samstarfi við VFÍ og Íslenska hljóðfélagið ÍSHLJÓÐ farið yfir stöðu hljóðmála á Íslandi og kynntar niðurstöður nýlegrar rannsóknar á kortlagningu hávaða með nýju reiknilíkani.
Dagskrá
13:00 Ráðstefnan sett og málefnið reifað
13:10 Hljóðvist og
skipulag
Eru hávaðakort notuð sem stjórntæki við skipulag? Hvernig er tekið tillit til
umhverfishávaða við skipulagsvinnu? Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri Garðabæ.
13:30 Hávaði
og deiliskipulag
Skipulagsskilmálar, staðal- og
reglugerðarkröfur m.t.t. hljóðvistar. Margrét Aðalsteinsdóttir, Eflu.
13:50 Hávaði á
Íslandi
Lög og reglugerðir. Gunnar Alexander Ólafsson, Umhverfisstofnun.
14:10 - Kaffihlé
14:30 Kortlagning
hávaða með nýju evrópsku reiknilíkani CNOSSOS EU
Helstu niðurstöður nýlegs rannsóknarverkefnis og samanburður við
samnorræna reiknilíkanið sem beitt hefur verið hér á landi. Ólafur Hafstein Pjetursson, Trivium.
14:50 Hljóðhönnun
bygginga og byggingarreglugerð
Hvernig er opinberu eftirliti háttað? Anna Guðný Gylfadóttir, byggingafulltrúi í Garðabæ.
15:10 Hljóðkröfur
í ÍST45:2016
Eru þær fullnægjandi eða má bæta þær? Ólafur Hjálmarsson, Trivium.
15:30 Umræður og fyrirspurnir.
16:00 Málþingi slitið
Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.