Trúnaðarmannanámskeið - EKKO
Á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 20. janúar 2026.
Þriðjudaginn 20. janúar 2026 verður haldið námskeið fyrir trúnaðarmenn VFÍ.
Efni námskeiðsins er EKKO mál (einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi).
Tími: kl. 9:00–12:00.
Fyrirlesari: Auður Erla Gunnarsdóttir.
Námskeiðslýsing
Farið verður yfir skilgreiningar EKKO samkvæmt reglugerð og helstu birtingarmyndir ræddar. Jafnframt verður fjallað um fagleg vinnubrögð þegar EKKO mál koma upp. Verkefni verða unnin í hópum út frá umfjöllunarefninu.
Trúnaðarmenn VFÍ hafa fengið boð á þennan viðburð.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á: kjaramal@verktaekni.is
Að loknum hádegisverði verður haldinn samráðsfundur fulltrúa í samninganefndum og eru trúnaðarmenn velkomnir á þann fund.
