VerkTækni golfmótið 2020

Haldið á Garðavelli Akranesi.

  • 28.8.2020, Akranes

Haldið hjá golfklúbbnum Leyni, Garðavelli Akranesi, föstudaginn 28. ágúst.
Skráningu lýkur þriðjudaginn 25. ágúst.

Athugið að mótið er opið fyrir alla golfara í VFÍ óháð stöðu forgjafar! – Megintilgangurinn er að halda skemmtilegt mót.

Dagskrá í grófum dráttum:
11:00 Mæting á Garðavöll, Akranesi.
12:00 Ræst út á öllum teigum samtímis.

Málsverður og verðlaunaafhending í klúbbhúsinu.

Mótsgjald er kr. 6.000.- Matur innifalinn.

Staðsetning og fyrirkomulag
VerkTækni golfmótið verður nú haldið í 23. skipti og fer að þessu sinni fram hjá golfklúbbnum Leyni, Garðavelli föstudaginn 28. ágúst. Mótið er fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga sem eru félagmenn í VFÍ, maka þeirra og gesti. Keppt er í sveitakeppni á milli verkfræðinga og tæknifræðinga þar sem fimm bestu skor telja án forgjafar. Einnig er keppt í eftirtöldum flokkum einstaklinga:

Félagsmenn VFÍ
Besta skor án forgjafar, veitt eru verðlaun fyrir efsta sæti.
Punktakeppni með fullri forgjöf, veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti.

Gesta- og makakeppni

Tilkynnt verður um önnur verðlaun á staðnum, til dæmis nándarverðlaun o.þ.h.

Skráning 
Skráning er á GolfBox en það er hægt að skrá sig strax símleiðis hjá Leyni: 431-2711. Einnig má senda tölvupóst: tilkynningar@verktaekni.is Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram: Fullt nafn, forgjöf og með hverjum er óskað að spila. Mótsstjórn mun endurraða í holl telji hún þörf á því. 

Golf á tímum COVID-19

Eins og kylfingar vita eru í gildi sérstakar reglur vegna COVID-19. Ítrustu reglum verður að sjálfsögðu fylgt á mótinu. Upplýsingar á vef GSÍ um golf á tímum COVID-19.