VerkTækni golfmótið - ný dagsetning

Verður haldið 6. september.

  • 6.9.2018, Akranes
  • golfbolti

VerkTæknimótið í golfi sem var frestað vegna veðurs verður haldið á Garðavelli Akranesi fimmtudaginn 6. september.

Dagskrá í grófum dráttum:
12:00 Mæting á Garðavöllinn, Golfklúbburinn Leynir.
13:00 Ræst út á öllum teigum samtímis.

Kvöldverður og verðlaunaafhending í klúbbhúsinu.

Mótsgjald er kr. 4.000.-
Kvöldverður er ekki innifalinn en verður seldur á hóflegu verði.

Staðsetning og fyrirkomulag
VerkTækni golfmótið verður nú haldið í 21. skipti og fer að þessu sinni fram hjá golfklúbbnum Leyni Akranesi, fimmtudaginn 6. september. Mótið er fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga sem eru félagmenn í VFÍ, maka þeirra og gesti.  Keppt  er í sveitakeppni á milli verkfræðinga og tæknifræðinga þar sem 5 bestu skor telja án forgjafar. Einnig er keppt í eftirtöldum flokkum einstaklinga:

Félagsmenn VFÍ
Besta skor án forgjafar, veitt eru verðlaun fyrir efsta sæti.
Punktakeppni með fullri forgjöf, veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti.

Gesta- og makakeppni

Tilkynnt verður um önnur verðlaun á staðnum, til dæmis nándarverðlaun o.þ.h.

Athugið að mótið er opið fyrir alla golfara í VFÍ óháð stöðu forgjafar! – Megintilgangurinn er að halda skemmtilegt mót.

Skráning
Skráning í mótið er á golf.is Þeir sem ekki hafa aðgang inn á þann vef geta sent tölvupóst:tilkynningar@verktaekni.is Í póstinum þarf að koma fram fullt nafn, forgjöf og með hverjum er óskað að spila.  Mótsstjórn mun endurraða í holl telji hún þörf á því.

Ræst verður út á öllum teigum kl. 13:00 og keppendur skrá sig saman í holl.  Mótsstjórn mun endurraða í holl telji hún þörf á því.

Golfnefnd VFÍ: Kristinn J. Kristinsson,(krjk@verkis.is), Lára Hannesdóttir ( lara.hannesdottir@gmail.com ) og Guðni Örn Jónsson (gudni.orn@simnet.is)