VerkTæknimótið í golfi

Skráið ykkur sem fyrst!

  • 4.9.2022, Golfklúbbur Grindavíkur.

Haldið á Húsatóftavelli Grindavík, sunnudaginn 4. september.
Skráningu lýkur á hádegi fimmtudaginn 1. september.

Athugið að mótið er opið fyrir alla golfara í VFÍ óháð stöðu forgjafar! – Megintilgangurinn er að halda skemmtilegt mót.

Dagskrá í grófum dráttum:
12:00 Mæting á Húsatóftavöll.
13:00 Ræst út á öllum teigum samtímis.

Málsverður og verðlaunaafhending í klúbbhúsinu.

Mótsgjald er kr. 7.000.- Matur innifalinn. 

Staðsetning og fyrirkomulag
VerkTækni golfmótið fer að þessu sinni fram hjá Golfklúbbi Grindavíkur, Húsatóftavelli, sunnudaginn 4. september. Mótið er fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga sem eru félagsmenn í VFÍ, maka þeirra og gesti. Keppt er í sveitakeppni á milli verkfræðinga og tæknifræðinga þar sem fimm bestu skor telja án forgjafar. Einnig er keppt í eftirtöldum flokkum einstaklinga:

Félagsmenn VFÍ
Besta skor án forgjafar, veitt eru verðlaun fyrir efsta sæti.
Punktakeppni með fullri forgjöf, veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti.

Gesta- og makakeppni

Tilkynnt verður um önnur verðlaun á staðnum, til dæmis nándarverðlaun o.þ.h.

Skráning
Skráning í mótið er á GolfBox en það er hægt að skrá sig símleiðis hjá Golfklúbbi Grindavíkur í síma: 426 8720.
Mótsstjórn mun endurraða í holl telji hún þörf á því. (Athugið upphæðin 9.500.- gildir ekki, gjaldið er kr. 7.000.- og greitt á staðnum).