Vestmannaeyjaferð ÖVFÍ - FRESTAÐ

Skráning er hafin.

  • 3.9.2020, 8:00 - 21:00, Vestmannaeyjar

Stjórn Öldungadeildar VFÍ (ÖVFÍ) vinnur að undirbúningi ferðar til Vestmannaeyja. Ráðgert er að ferðin verði fimmtudaginn 3. september. Endanleg dagskrá liggur ekki fyrir. Farið verður með rútu frá Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 kl. átta að morgni dags. Siglt verður til Eyja með Herjólfi kl. 10:45. Ráðgert er að heimsækja Eldheima, fara í skoðunarferð um Heimaey og einnig munu HS veitur taka á móti hópnum. Verð í ferðina er kr. 8.000.- Innifalið eru rútuferðir, sigling með Herjólfi, sameiginlegur hádegismatur á veitingahúsi, aðgangseyrir í Eldheima og nesti. 

Skráning er hafin og gildir reglan "fyrstur kemur, fyrstur fær". Hámarksfjöldi í ferðina er 50 manns. Makar eru velkomnir.

Skráning er með tölvupósti á netfangið: sigrun@verktaekni.is

Ljósmynd: visitvestmannaeyjar.is