Vinnuumhverfið - Hinn nýi veruleiki
Á vegum Vinnuvistfræðifélags Íslands.
Vinnís (Vinnuvistfræðifélag Íslands) býður félagsmönnum VFÍ á hádegisfund þann 10. mars um hina nýju framtíð sem nú blasir við varðandi vinnuumhverfið; vinnu frá heimili og sveigjanlegan vinnutíma. Rætt verður um hvaða réttindi og skyldur fylgja þeim nýja sveigjanleika sem mörg fyrirtæki bjóða starfsfólki sínu upp á eftir reynslu af heimavinnu á tímum Covid-19.
- Hvernig lítur heildarmyndin út?
- Hvað munu fyrirtæki bjóða starfsfólki varðandi sveigjanlega vinnu heima/skrifstofu (rafmagn, húsnæði, hiti, lýsing o.fl.).
- Hvaða ábyrgð hafa fyrirtækin gagnvart vinnu heima? (Reglugerðir).
- Hvaða réttindi hefur starfsfólk varðandi þennan nýja veruleika?
- Verður það krafa í framtíðinni að allir geti unnið heima að hluta?
- Hvernig breytist skrifstofuumhverfið? (Færri vinnustöðvar, fjölbreyttari aðstaða, meiri sveigjanleiki).
Ketill Berg Magnússon - Mannauðsstjóri Marel í Norður-Evrópu og Rússlandi og stundakennari við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.
Gunnlaugur Már Briem, sjúkraþjálfari hjá Vinnuvernd, varaformaður félags sjúkraþjálfara og stundakennari við Háskóla Íslands.
Þau sem vilja taka þátt í fundinum eru beðin um að senda skilaboð í gegnum Facebooksíðu Vinnís eða senda póst á lilja.birgisdottir@marel.com. Sendur verður tengill á fundinn.