Vorferð Norðurlandsdeildar
Skoðunarferð í Glerárvirkjun
Föstudaginn 18. maí kl. 17:00 verður skoðunarferð í nýju Glerárvirkjunina í boði Fallorku.
Dagskrá: kl. 17:00 mæting við stöðvarhús Glerárvirkjunar við Réttarhvamm (sunnan við gámavöllinn þar sem áramótabrennan hefur verið).
Andri hjá Fallorku tekur á móti okkur, skoðum stöðvarhúsið.
Rúta keyrir okkur síðan inn að stíflunni á Glerárdal og við skoðum hana.
Að skoðun lokinni um kl. 19 förum við á hótel KEA þar sem Fallorka býður okkur í léttar veitingar (samlokur/gos) og þar verður kynning á Glerárvirkjun og Fallorku.
Reiknað er með dagskrárlokum milli 20 og 21.
Vinsamlega tilkynnið mætingu á netfangið bjorgvin@avh.is
Frestur til að skrá sig er til hádegis fimmtudaginn 17. maí.
(Ath. það er nauðsynlegt að fá skráningu til að áætla veitingar og stærð rútu).
(Ljósmynd af Glerárvirkjun: Hlíðarskóli).