Vorfundur Byggingarstaðlaráðs 2023
Kadeco og Carbfix - kynning á starfseminni.
Byggingarstaðlaráð í samstarfi við Verkfræðingafélag Íslands boðar til vorfundar fimmtudaginn 11. maí 2023 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12 – 13. - Fundurinn er öllum opinn. Boðið verður upp á samlokur og drykki.
Streymt verður frá fundinum. Í boði verður að senda spurningar í gegnum spjallið á rásinni á meðan á viðburðinum stendur. (Ef smellt er á Vimeo merkið neðst til hægri, birtist skjár með spjallinu hægra megin).
KADECO - Ný þróunaráætlun fyrir nærsvæði Keflavíkurflugvallar
Samúel Torfi Pétursson, þróunarstjóri Kadeco, heldur stutt erindi um K64 sem er heildstæð efnahags- og skipulagsleg þróunaráætlun fyrir svæðið í kringum Keflavíkurflugvöll en henni var ýtt úr vör í mars síðastliðnum.
CARBFIX – Við breytum CO2 í stein
Ólafur Teitur Guðnason, samskiptastjóri Carbfix, segir frá tækni Carbfix til kolefnisbindingar í bergi og helstu verkefnum sem fyrirtækið vinnur að.