Fundur ÖVFÍ: Forseti Alþingis í heimsókn
Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis verður gestur fundarins.
Á fundi Öldungadeildar VFÍ miðvikudaginn 12. nóvember mun Þórunn Sveinbjarnardóttir segja frá starfsemi Alþingis.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:30 með kaffi og bakkelsi og fyrirlestur byrjar kl. 16:00.
Allir félagsmenn VFÍ og makar eru velkomnir á fundi Öldungadeildar VFÍ.
