Ráðstefna haldin á Ísafirði - 30. september til 3. október 2025

30 ár liðin frá snjóflóðunum í Súðavík og á Flateyri

SNOW2025 – The International Symposium on Mitigation Measures against Snow Avalanches and other Rapid Gravity Mass Flows.

SNOW2025 Proceedings.

Í ár eru liðin 30 ár frá hinum mannskæðu snjóflóðum sem féllu á þorpin Súðavík og Flateyri. Atburðirnir höfðu gríðarleg áhrif vegna mannstjóns og verulegs eignatjóns, auk þess að raska lífi fólks til langframa. Síðan þá hefur verið unnið markvisst að byggingu varnarmannvirkja, þróun vöktunarkerfa og aðlögun samfélaga að þessari náttúruvá.

Verkfræðingafélag Íslands (VFÍ) taldi mikilvægt að minnast þessara atburða með því að halda SNOW ráðstefnu á Ísafirði dagana 30. september til 3. október 2025.

VFÍ hefur áður haldið slíkar ráðstefnur á Siglufirði árið 2019 og á Egilsstöðum árið 2008.

Meginþemu ráðstefnunnar

  • Áhættustjórnun
  • Umhverfi og samfélag
  • Skipulag, hönnun, uppbygging og viðhald varnarmannvirkja
  • Virkni varnargarða byggð á reynslu, tilraunum og tölulegum hermunum

Ráðstefnurnar hafa vakið mikla athygli og laðað að bæði innlenda og erlenda þátttakendur.  Meðal þátttakenda voru fjölmargir þekktir vísindamenn og sérfræðingar á sviði ofanflóða og varnarmannvirkja, sem gaf einstakt tækifæri til að hitta og eiga samtal við leiðandi aðila á þessu sviði.

Skipuleggjendur

SNOW 2025 skipulögðu íslenskir og erlendir fagaðilar: Verkfræðingafélag Íslands, Vegagerðin, Skipulagsstofnun, FSRE, Háskóli Íslands, COWI, NTNU í Þrándheimi, Norges Geotekniske Institutt (NGI), SLF í Davos, Sviss, og ORION Consulting slf.

Nánari upplýsingar: Árni Jónsson verkfræðingur, arni@orion.is (s:899 4869)