Nýtt námskeið: Styrkleikar í lífi og starfi

Gagnlegt og skemmtilegt námskeið.

  • 28.1.2025, 15:00 - 18:00, Engjateigur 9

Námskeið: Styrkleikar í lífi og starfi.
Þriðjudaginn 28. janúar kl. 15-18, í Verkfræðingahúsi Engjateigi 9.

Skelltu þér á þetta frábæra styrkleikanámskeið þar sem Guðrún Snorradóttir, stjórnendaþjálfi, fylgir þátttakendum í gegnum leiðir til að greina og efla styrkleika sína. Um að gera að skrá sig sem fyrst á þetta frábæra námskeið sem hentar bæði almennum starfsmönnum og stjórnendum.

Guðrún var fyrirlesari á Samlokufundi og má nálgast upptöku hér.

Námskeiðið kostar kr. 5.000.- og er niðurgreitt til þeirra sem eiga rétt í starfsmenntunarsjóðum VFÍ. (Einnig hægt að fá þátttökugjald endurgreitt samkvæmt einstaklingsbundnum réttindum).

Þau sem ekki eiga aðild að starfsmenntunarsjóðum greiða kr. 14.000.-

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 25 manns. (Þegar þeim fjölda er náð verður skráning á biðlista).

Greiðsluupplýsingar verða sendar til þátttakenda frá skrifstofu VFÍ.

(Ljósmynd: Unsplash).


Skráning á viðburð

Þátttakandi

Til að fyrirbyggja ruslpóst: