Mikilvægt tæki í kjarabaráttu, félagsmenn eru hvattir til að taka þátt.
Þrír heppnir þátttakendur fá gjafabréf.
Kjarakönnun Kjaradeildar VFÍ stendur nú yfir. Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt. Könnunin er eitt mikilvægasta tæki VFÍ til að vinna að bættum kjörum verkfræðinga og tæknifræðinga.
Könnunin er mikilvæg undirstaða upplýsingagjafar fyrir launaviðtöl og fleira.
Dregnir verða út þrír heppnir þátttakendur sem munu fá gjafabréf í Kringlunni að upphæð kr. 50.000.- hver.
Félagsvísindastofnun HÍ sér líkt og áður um framkvæmd könnunarinnar. Verkfræðingafélagið hefur ekki aðgang að svörum og ekki er unnt að rekja þau til þátttakenda. Það er auðvelt að svara. Það eina sem þarf að hafa við höndina er launaseðill fyrir febrúar 2025 (má nálgast í net/heimabönkum og á island.is).
Þeim sem ekki hafa fengið könnunina er bent á að skoða vel ruslpóstinn og einnig flipana í gmail þar sem auglýsingapóstur lendir gjarnan. - Einnig má hafa samband í síma 535 9300 eða senda póst á netfangið kjaramal@verktaekni.is