Er kominn tími til að hugsa okkar daglegu samgöngur upp á nýtt?

Málþing á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 2. febrúar. - UPPTAKA og glærur.

Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur stigmagnast á undanförnum árum með tilheyrandi töfum, hávaða og mengun. Er kominn tími til að hugsa okkar daglegu samgöngur upp á nýtt? Verkfræðingafélag Íslands býður til málþings þar sem framtíðarsýn ríkis og borgar og eins stærsta vinnustaðar í borginni verður kynnt. - Og ekki síst; á málþinginu gefst tækifæri til að ræða málin og skiptast á skoðunum.

Málþing Verkfræðingafélags Íslands fimmtudaginn 2. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, salur H - I (annarri hæð). Kl. 8:30 – 10:00. - Húsið opnar kl. 8 með léttum morgunverði. Málþingið var í beinu streymi. Sjá einnig glærur í dagskrá hér fyrir neðan.

Streymi

Dagskrá:

Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins - verkefni og fjármögnun.
Þröstur Guðmundsson, forstöðumaður verkefna og áætlana hjá Betri samgöngum. GLÆRUR.

Viðfangsefni í borgarsamgöngum.
Þorsteinn Hermannsson, forstöðumaður þróunar hjá Betri samgöngum. GLÆRUR.

Framtíðarsýn um svæði Háskóla Íslands. Borgarlínan - "Green Campus"
Hrund Ólöf Andradóttir, prófessor við umhverfis- og verkfræðideild Háskóla Íslands. GLÆRUR.

Fundarstjóri: Lilja Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur, sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu.

Málþingið er skipulagt af Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ.

Verið velkomin. - Ókeypis aðgangur.

Til að auðvelda undirbúning og koma í veg fyrir matarsóun biðjum við ykkur að skrá þátttöku, eigi síðar en fyrir hádegi á miðvikudaginn.

HÆGT AÐ SKRÁ SIG HÉR.