Þjónustusamningur við skrifstofu VFÍ.
Skrifstofa VFÍ veitir félagsmönnum í Stéttarfélagi tölvunarfræðinga (ST) þjónustu á sviði kjaramála.
Yfirlit
Félagsmenn ST hafa fulla aðild að orlofs-, sjúkra- og starfsmenntunarsjóðum VFÍ svo framarlega að iðgjöld séu greidd. Einnig eiga þeir vísan aðgang að þjónustu félagsins á sviði kjaramála. Félagsgjald í Stéttarfélagi tölvunarfræðinga fyrir árið 2025 er kr. 45.000.- (kr. 3.750.- á mánuði).
Skrifstofa VFÍ veitir félagsmönnum ráðgjöf og vinnur að gerð kjarasamninga fyrir hönd félagsins.Fyrirspurnir um kjaramál: kjaramal@verktaekni.is
Kjarasamningur við ríkið felldur
Þann 3. mars síðastliðinn skrifaði
samninganefnd Stéttarfélags tölvunarfræðinga (ST) undir kjarasamning við ríkið. Sá
samningur var felldur af félagsmönnum sem starfa hjá ríkinu með yfirgnæfandi
meirihluta. Síðan þá hefur
samninganefnd ST fundað reglulega hjá sáttasemjara. Viðsemjandinn, ríkið, er
mjög fast fyrir og því hefur ferlið verið nokkuð langt og strangt.
Samninganefnd ST sendi frá sér tillögu og stóðu vonir til að hún yrði til þess að hægt væri að ganga frá nýjum samningi. Engin viðbrögð hafa borist frá sáttasemjara og þverrandi líkur að samningur náist fyrir mánaðamótin maí/júní, þó ekki útlokað enn.
Félagsmenn í Stéttarfélagi tölvunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu verða
upplýstir um leið og skrifað hefur verið undir.
Aðalfundur 2025 - Ný stjórn ST
Aðalfundur Stéttarfélags tölvunarfræðinga
var haldinn 14. maí 2025 kl. 16:30 í Verkfræðingahúsi. Fundurinn var líflegur
enda betur sóttur en oft áður.
Björn Heimir Björnsson var kosinn formaður. Björn situr einnig í samninganefnd
ST við ríkið. Jónas Friðrik Steinsson, fráfarandi formaður, situr áfram í
stjórn. Björn Ingi Stefánsson gaf ekki kost á sér
til áframhaldandi stjórnarsetu og er honum færðar kærar þakkir fyrir ánægjulegt
samstarf á liðnum árum.
Ný í stjórn ST er Karítas Sif Halldórsdóttir en hún situr einnig í samninganefnd ST við ríkið.
Stjórn Stéttarfélags tölvunarfræðinga
2025-2026 er skipuð eftirfarandi aðilum:
Björn Heimir Björnsson, formaður.
Einar Indriðason.
Jónas Friðrik Steinsson Snædal.
Karítas Sif Halldórsdóttir.
Stjórnin skiptir með sér verkum.
Um orlofssjóð og sjúkra- og starfsmenntunarsjóði
Um er að ræða mismunandi sjóði á opinberum og almennum vinnumarkaði, nema orlofssjóðurinn er sá sami fyrir báða hópa.
Sjúkrasjóður VFÍ. Fyrir félagsmenn á almennum markaði. Sjóðurinn greiðir sjúkradagpeninga og styrki vegna útlagðs kostnaðar sjóðfélaga, til dæmis vegna líkamsræktar.
Styrktarsjóður VFÍ. Fyrir félagsmenn á opinberum markaði. Sjóðurinn greiðir sjúkradagpeninga og styrki vegna útlagðs kostnaðar sjóðfélaga, til dæmis vegna líkamsræktar.
VFÍ rekur tvo starfsmenntunarsjóði. Annars vegar fyrir félagsmenn sem starfa hjá ríkinu, Reykjavíkurborg og öðrum sveitarfélögum og hins vegar fyrir þá sem starfa á almennum markaði. Styrkir eru veittir til að sækja námskeið og ráðstefnur, kaup á bókum, tölvum o.s.frv. Athugið að þar sem iðgjaldið er mun hærra á opinberum vinnumarkaði eru réttindi meiri.
Starfsmenntunarsjóður VFÍ er fyrir félagsmenn á almennum markaði.
Vísinda- og starfsmenntunarsjóður VFÍ er fyrir félagsmenn á opinberum markaði.
Nánar um starfsmenntunarsjóði VFÍ.
Orlofssjóður VFÍ. Fyrir félagsmenn á almennum og opinberum markaði.
Þjónustusamningur - EKKI félagsaðild að VFÍ
Þjónustusamningurinn felur ekki í sér aðild að Verkfræðingafélaginu. Rétt er að taka fram að aðild að ST felur ekki í sér rétt til þátttöku í faglegu starfi VFÍ, þ.m.t. Rýniferðum.
Upplýsingar fyrir launagreiðendur.
Athugið að Stéttarfélag tölvunarfræðinga (ST) og Félag tölvunarfræðinga (FT) eru aðskilin félög en hafa svipuð skilyrði varðandi inngöngu. FT er fagfélag og sinnir ekki kjaramálum.
Kjarakönnun - Rafrænt viðmót
Aðgangur að kjarakönnun tölvunarfræðinga er gegnum "Mínar síður" á vef VFÍ. Innskráning er með rafrænum skilríkjum og valið "Skráarsvæði" á stikunni. Þar eru ýmis skjöl, meðal annars kjarakönnunin.
Rafrænt viðmót Kjarakönnunar ST og FT. (Ath. Notendanafn og lykilorð var sent félagsmönnum í tölvupósti).
Hvaða gögn eiga að fylgja umsókn?
Umsækjendur að stéttarfélagi tölvunarfræðinga sem lokið hafa námi við íslenska háskóla þurfa einungis að skila inn vottorði um útskrift. Umsækjendur sem numið hafa við erlenda háskóla senda inn prófskírteini og lýsingu á námsleiðum ásamt einingafjölda.
Upplýsingar um starfsheitið tölvunarfræðingur.
Lög Stéttarfélags tölvunarfræðinga.
Stjórn Stéttarfélags tölvunarfræðinga
Jónas Friðrik Steinsson, formaður | jonas@steinsson.org |
Björn Ingi Stefánsson, meðstjórnandi | bjorn_ingi@simnet.is |
Björn Heimir Björnsson, meðstjórnandi | bjorn.bjornsson@gmail.com |
Einar Indriðason, varamaður | einar.indrida@gmail.com |
Kjarasamningar
Kjarasamningar við ríkið
Kjarasamningur við ríkið 2023. Niðurstaða atkvæðagreiðslu.
Kjarasamningur við ríkið 2020. (Breytingar á eldri samningi frá 2015).
Tvískipt yfirvinna - skýringar.
Launatöflur - gilda frá 1. apríl 2022.
Kjarasamningur við ríkið 2015.
Breytingar í nóvember 2015.
Rammasamkomulag 2015.
Kjarasamningur við ríkið september 2014.
Kjarasamningar við Reykjavíkurborg
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg 2024.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg 2023.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg 2020.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg 2016.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg 2014.
Kjarasamningar við Samtök atvinnulífsins (SA)
Þann 30. apríl 2025 var undirritaður nýr réttindasamningur Stéttarfélags tölvunarfræðinga við Samtök atvinnulífsins. Réttindasamningurinn er ótímabundinn en aðilar getað tekið hann upp og gert á honum leiðréttingar eða breytingar eftir því sem ytra samningsumhverfi breytist.
Kjarasamningur SA við ST o.fl. undirritaður 30. apríl 2025.
Aðlögun að vinnutímaákvæðum, 5. mars 2021.
Stofnanasamningar
Staðlað form stofnanasamnings.
Leiðbeiningar vegna staðlaðs form stofnanasamnings.
Land og skógur - apríl 2025
Hagstofan - nóvember 2023
Rannís - apríl 2023
Skatturinn - febrúar 2022 - Bráðabirgðasamkomulag janúar 2024
Lyfjastofnun - nóvember 2020
Tryggingastofnun - apríl 2018
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun - júní 2020
Rannís - júlí 2020