Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands 2023

Frestur til að skila inn framboðum og tillögum er til 15. febrúar.

25. jan. 2023

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 27. apríl kl. 17:00. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. 

Samkvæmt félagslögum á að skila framboðum í stjórnir félagsins og tillögum sem leggja á fyrir aðalfund eigi síðar en 15. febrúar. 

Fundargerð aðalfundar 2022.

Núverandi stjórnir VFÍ.

Nánar um stjórnarkjör

Kosning til aðalstjórnar.

Úr stjórn eiga að ganga: Svana Helen Björnsdóttir, formaður, Guðrún Sævarsdóttir, meðstjórnandi og Þröstur Guðmundsson, varameðstjórnandi.  Því er kosið um formann, meðstjórnanda og varameðstjórnanda til tveggja ára. 

(Sjá 11. grein laga VFÍ um stjórnarkjör).

Kosning í stjórn Kjaradeildar.

Úr stjórn Kjaradeildar VFÍ eiga að ganga: Margrét Elín Sigurðardóttir, formaður, Erlendur Örn Fjeldsted, meðstjórnandi, Halldór Zoëga, meðstjórnandi og Einar Halldórsson varameðstjórnandi. 

(Sjá 12. grein laga VFÍ um stjórnarkjör Kjaradeildar).

Kosning í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi.

Úr stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi eiga að ganga Páll Á. Jónsson, formaður, Stefán Veturliðason, meðstjórnandi og Jón M. Guðmundsson, varameðstjórnandi. 

(Sjá 13. grein laga VFÍ um stjórnarkjör Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi).

Dagskrá aðalfundar samkvæmt félagslögum

1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.

2. Reikningar félagsins, þ.m.t. reikninga deilda og sjóða félagsins, fyrir undanfarandi starfsár lagðir fram til samþykkis.

3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.

4. Tillögur félagsstjórnar.

5. Lýst kosningu stjórnar.

6. Kjör endurskoðanda og skoðunarmanns.

7. Lýst kosningu í stjórn Kjaradeildar félagsins.

8. Lýst kosningu í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi.

9. Laun formanns og stjórnarmanna.

10. Laga- og reglugerðarbreytingar.

11. Önnur mál.