Atkvæðagreiðsla hafin - 7. nóv. 2016

Rafræn atkvæðagreiðsla um tillögu að sameiningu Verkfræðingafélags Íslands og Tæknifræðingafélags Íslands er hafin og henni lýkur kl. 17 næstkomandi föstudag, 11. nóvember. Félagsvísindastofnun HÍ sér um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar og voru kjörseðlar sendir félagsmönnum í tölvupósti laugardaginn 5. nóvember.

 

Félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni, það er einfalt mál. Félagslega mikilvægt er fyrir VFÍ að sem flestir greiði atkvæði og taki afstöðu.

Ályktun vegna ákvörðunar kjararáðs - 3. nóv. 2016

Stjórnir Kjaradeildar Verkfræðingafélags Íslands og Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands hafa sent frá sér ályktun þar sem nýkjörið Alþingi er hvatt til þess að endurskoða úrskurð kjararáðs um launa­kjör æðstu emb­ætt­is­manna þjóðar­inn­ar.

Kjörskrá - Rétt netföng - 2. nóv. 2016

Rafræn atkvæðagreiðsla um sameiningu VFÍ og TFÍ fer fram dagana 5. - 11. nóvember. 

Kynningarfundur - Spurt og svarað - 1. nóv. 2016

Kynningarfundur fyrir félagsmenn VFÍ vegna fyrirhugaðrar atkvæðagreiðslu um sameiningu VFÍ og TFÍ var haldinn 27. október. Gagnleg umræða fór fram og spurningum svarað. Skrifstofan heldur utan um þær spurningar sem hafa borist frá félagsmönnum. Spurningar og svör vegna atkvæðagreiðslu.