Afsláttur af námskeiðum Endurmenntunar HÍ

Félagsmenn VFÍ fá 20% afslátt af tveimur námskeiðum að eigin vali.

1. feb. 2021

Félagsmönnum í Verkfræðingafélagi Íslands býðst 20% afsláttur af tveimur námskeiðum að eigin vali á vormisseri hjá Endurmenntun HÍ. Um er að ræða námskeið í öllum námskeiðsflokkum að undanskildum námskeiðum með erlendum sérfræðingum og námskeiðum sem tilheyra lengra námi. 

Nánari upplýsingar í markpósti frá Endurmenntun HÍ.

Skráning fer fram á vef Endurmenntunar. Til að virkja afsláttinn þarf að skrá kóðann EHIVFI21 í reitinn „Athugasemdir".

Athugið að við skráningu sjáið þið óbreytt námskeiðsverð. Afslátturinn kemur fram á greiðsluseðli. 

Vekjum sérstaka athygli á námskeiðinu: Deiliskipulag - hlutverk þess í skipulagsferlinu. 

Ljósmynd: Jeremy Bishop á Unsplash.