Áríðandi tilkynning vegna COVID-19
Dvöl í orlofshúsum er ekki heimil í sóttkví eða ef grunur er um smit.
Í ljósi ráðlegginga frá sóttvarnalækni vegna útbreiðslu COVID-19 hvetjum við félagsmenn til að nýta sér þjónustu VFÍ í gegnum síma 535 9300 eða tölvupóst fremur en að mæta á skrifstofuna. Einnig er hægt að nota bein símanúmer starfsmanna eða senda tölvupóst á viðkomandi starfsmann.
Upplýsingar um netföng og símanúmer starfsmanna VFÍ.
Mikilvægt er að félagsmenn komi ekki á skrifstofuna sé einhver þeim nákominn veikur eða í sóttkví.
Sjá leiðbeiningar landlæknis.
Hægt er að sækja um alla styrki á "Mínum síðum".
Nýting orlofshúsa í ljósi COVID-19
Vegna þeirra aðstæðna sem nú eru í samfélaginu biðjum við félagsmenn okkar að nýta sér ekki orlofshús VFÍ séu þeir veikir eða í sóttkví.
Stanglega er bannað er að dvelja í orlofshúsunum ef minnsti grunur vaknar um smit eða viðkomandi er í sóttkví.
Gestir eru beðnir um að tilkynna til skrifstofunnar (skrifstofa@verktaekni.is) eða umsjónarmanns(umsjon.vfi@gmail.com) ef minnsti grunur vaknar um smit eftir dvöl í orlofshúsi.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla