• bygging

Aukaaðalfundur VFÍ - lagabreytingar

Fimmtudaginn 25. janúar 2018.

11. jan. 2018

Aukaaðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar kl. 17. Fundurinn verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 17.

Til fundarins er boðað vegna tillögu stjórnar um breytingar á lögum félagsins.

Einnig verður kynnt stefnumótun fyrir félagið sem stjórnin hefur unnið að síðastliðna mánuði og aðdragandi þeirra lagabreytinga sem lagðar eru fram.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér lagabreytingarnar vel og mæta á fundinn. 

Skjal með lagagreinum sem taka breytingum.

Lög VFÍ í heild með tillögum um breytingar.