• Teningur_1

Carbfix og Controlant hlutu Teninginn

Teningurinn afhentur í fyrsta sinn.

25. okt. 2021

Carbfix og Controlant hlutu Teninginn, viðurkenningu Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd, þegar hann var afhentur í fyrsta sinn á Degi verkfræðinnar sem haldinn var á Hótel Nordica 22. október. Dagur verkfræðinnar var sem fyrr mjög vel sóttur og fullt hús. Á myndinni eru frá vinstri: Svana Helen Björnsdóttir, formaður VFÍ, Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastjóri Carbfix, Guðmundur Árnason, fjármálastjóri Controlant og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.

Teningurinn afhentur fyrir árin 2019 og 2020

Markmið viðurkenningarinnar er að vekja athygli á vel útfærðum og áhugaverðum verkefnum sem tæknifræðingar og verkfræðingar vinna að. Hver dómnefnd­armaður gaf einkunn fyrir hvert viðmið, sem eru alls sex talsins, og það verk­efni sem hlaut hæstu meðaltals einkunn hreppti verðlaunin.

Upphaflega átti að veita Teninginn í fyrsta skipti í fyrra en vegna kórónuveirufaraldursins var hann afhentur fyrir árin 2019 og 2020 í ár.

Carbfix hlaut Teninginn fyrir árið 2019 en það byrjaði sem samstarfsverkefni Orkuveitu Reykjavíkur, Háskóla Íslands, CNRS í Toulouse og Columbia Háskóla árið 2007. Markmiðið var að þróa iðnaðarferli til þess að fanga koltvíoxíð úr útblæstri orkuvera og beint úr andrúmslofti og binda það í bergi.

Í lok árs 2019 var ákveðið að gera félagið að sjálfstæðu dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur. Tilgangur þess er að stuðla að frekari þróun, þekkingu og útbreiðslu kolefnisförgunar í bergi með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og sporna gegn loftslagsbreytingum.

Controlant hlaut Teninginn fyrir árið 2020 en fyrirtækið þróar og framleiðir hug- og vél­búnað sem mælir meðal annars raka, hitastig og staðsetningu og sendir frá sér upplýsingar sem hægt er að fylgjast með í rauntíma til að tryggja gæði á viðkvæmum vörum og koma í veg fyrir sóun. Á þetta til dæmis við um matvæli og lyf, en síðarnefndi flokkurinn er meginuppistaðan í viðskiptum félagsins í dag.

Umsagnir dómnefndar.

Verkfræðilegur verðlaunagripur

Verðlaunagripurinn, sem var frumsýndur á Degi verkfræðinnar, hefur vakið verðskuldaða athygli. Hönnuðir eru Narfi Þorsteinsson og Adrian Rodriques. Í skemmtilegu myndbandi segja þeir frá hugmyndinni að baki Teningnum og gerð hans.

Myndbandið á youtube.