• Hringur_ljos_net

Dagur verkfræðinnar - Ertu með hugmynd?

Enn er hægt að senda inn tillögur að fyrirlestrum.

18. des. 2018

Dagur verkfræðinnar verður haldinn í fimmta sinn föstudaginn 22. mars 2019 á Hilton Reykjavík Nordica.

Dagskráin hefst kl. 13 og verða fyrirlestrar og kynningar í þremur opnum fundasölum.

Markmiðið með Degi verkfræðinnar er að kynna verkfræðina, spennandi verkefni og störf á því sviði og ekki síst efla tengsl og samheldni meðal íslenskra verkfræðinga og tæknifræðinga. Enn er tími til að skila inn góðum hugmyndum og tillögum að fyrirlestrum.

Dagur verkfræðinnar hefur vakið athygli og verið vel sóttur af félagsmönnum VFÍ og öðru áhugafólki. Á sjötta hundrað manns mættu á Dag verkfræðinnar í fyrra.

Ábendingar og tillögur vegna Dags verkfræðinnar 2019 má senda með tölvupósti: sigrun@verktaekni.is

Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.