Desemberuppbót 2022

Desemberuppbót á að greiða eigi síðar en 15. desember.

30. nóv. 2022

Kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins er viðmiðunarsamningur á almennum vinnumarkaði verkfræðinga og tæknifræðinga. Desemberuppbót 2022 samkvæmt þeim samningi er kr. 98.000.- fyrir fullt starf og greiðist eigi síðar en 15. desember. Uppbótin greiðist hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall en fullt ársstarf telst a.m.k. 45 unnar vikur fyrir utan orlof. Ekki er greidd desemberuppbót samkvæmt kjarasamningi við Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV).

Desemberuppbót er eingreiðsla sem atvinnurekendum ber samkvæmt kjarasamningi að greiða starfsmönnum sínum í byrjun desember ár hvert, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, þ.m.t. að því er varðar starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári.

Desemberuppbót samkvæmt nokkrum kjarasamningum

Kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins kr. 98.000.-
Ríki kr. 98.000.-
Reykjavíkurborg kr. 109.100.-
Önnur sveitarfélög kr. 124.750.- 

Uppgjör desemberuppbótar við starfslok
Hætti starfsmaður störfum fyrir fyrstu viku desember, þarf hann að hafa unnið a.m.k. 12 vikna samfellt starf á síðustu 12 mánuðum til að eiga rétt á desemberuppbót. Þá á hann rétt á að fá uppbótina greidda við starfslok, en þá hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall.

Farið er með desemberuppbót eins og hver önnur laun. Orlofslaun eru þó innifalin í desemberuppbót og greiðast því ekki sérstaklega.