Einstakt tilboð á Dale Carnegie námskeiðum

Fyrir sjóðfélaga í starfsmenntunarsjóðum VFÍ.

9. feb. 2021

Starfsmenntunarsjóðir VFÍ hafa gert samning við Dale Carnegie um sérstök kjör á námskeiðum sem nýtast bæði í starfi og einkalífi. Námskeiðin eru í boði staðbundið eða sem "Live Online" fjarnámskeið í rauntíma. 

Hér fyrir neðan er lýsing á námskeiðunum. Einnig er hægt að hringja í 555 7080 eða 864 5116 til að fá nánari upplýsingar. Hægt er að skrá þátttöku á netinu (sjá neðar) og í skilaboð er sett Verktækni - þá virkjast sérkjörin. 

Ávinningur af námskeiðunum:

  • Stækka þægindahringinn og auka sjálfstraust í mismunandi aðstæðum.
  • Rækta varanleg sambönd og ná fram samvinnu við aðra.
  • Sýna leiðtogafærni / hafa jákvæð áhrif á aðra.
  • Muna nöfn og nota þau.
  • Veita öðrum innblástur og kveikja eldmóð.
  • Kynna hugmyndir á skýran og hnitamiðaðan hátt.
  • Takast á við ágreining á háttvísan máta.
  • Nota sannfæringarkraft (vinna með mismunandi tjáningarform).
  • Vinna undir álagi og stjórna streitu og viðhorfi.
  • Aðlaga okkur að mismunandi samskiptastílum.

Athugið að afsláttarkjörin eru aðeins í boði fyrir sjóðfélaga í starfsmenntunarsjóðum VFÍ (annars vegar á almenna markaðinum og hins vegar á opinbera markaðinum). Að auki við afsláttarkjörin er hægt að nýta einstaklingsbundin réttindi. Upplýsingar um þau eru á  „Mínum síðum" á vef VFÍ. Einnig má senda tölvupóst.

Útfærsla A: staðbundið námskeið í þrjá heila daga

Þriggja daga Dale Carnegie námskeið
Staðsetning: Ármúli 11, 108 Reykjavík (staðbundið).
Fullt verð: Kr. 159.000.-  Verð til sjóðfélaga í starfsmenntunarsjóðum VFÍ er kr. 77.000.-

*Að auki geta sjóðfélagar nýtt persónubundin réttindi sem hafa safnast með greiðslu iðgjalda í viðkomandi sjóð.

Dagskrá:
08:30 - 16:30 | 19. mars 2021
08:30 - 16:30 | 20. mars 2021
08:30 - 16:30 | 21. mars 2021

Nánar um námskeiðið og skráning. 

Útfærsla B: Fjarnámskeið í rauntíma

Dale Carnegie námskeið "Live Online"
Staðsetning: Fjarnám í rauntíma.
Fullt verð: Kr. 169.000 - Verð til sjóðfélaga í starfsmenntunarsjóðum VFÍ er kr. 85.000.- 

*Að auki geta sjóðfélagar nýtt persónubundin réttindi sem hafa safnast með greiðslu iðgjalda í viðkomandi sjóð.

Næstu "Live online" námskeið:

17. febrúar. Einu sinni í viku, 3 klst í senn í átta skipti að morgni til frá kl. 8:30 til 11:30.

17. mars. Einu sinni í viku, 3 klst í senn í átta skipti að kvöldi frá kl. 18:00 til 21:00

Nánar um námskeiðið og skráning.

Live Online námskeið Dale Carnegie hafa verið í þróun í rúman áratug. Á námskeiðunum eru tveir þjálfarar og annar þeirra er tæknimaður sem aðstoðar allan tímann. Það er mikil virkni og þátttaka og samkvæmt könnunum er mikil ánægja með þetta form.