Fengu heiðursmerki VFÍ

Viðurkenning fyrir vel unnin störf

9. maí 2018

Davíð Á. Gunnarsson vélaverkfræðingur, Fjóla Jónsdóttir vélaverkfræðingur og Guðbrandur Steinþórsson byggingarverkfræðingur voru nýlega sæmd heiðursmerki Verkfræðingafélags Íslands.

Heiðursmerki VFÍ má veita í viðurkenningarskyni fyrir vel unnin störf á sviði verkfræði og tæknifræði eða vísinda, fyrir framtak til eflingar verkfræðinga- og tæknifræðingastéttinni í heild eða fyrir félagsstörf í þágu stéttarinnar.

  Alls hafa 121 einstaklingur hlotið heiðursmerki VFÍ í 106 ára sögu félagsins.

Á myndinni eru frá vinstri: Páll Gíslason formaður VFÍ, Fjóla Jónsdóttir, Davíð Á. Gunnarsson, Guðbrandur Steinþórsson og Árni B. Björnsson framkvæmdastjóri VFÍ. 

Umsagnir sem ritaðar voru í viðurkenningarskjölin eru hér fyrir neðan.

Davíð Á. Gunnarsson.
Fjóla Jónsdóttir.
Guðbrandur Steinþórsson