Fjölskyldudagur verkfræðinnar - skráning
Í Húsdýragarðinum Laugardal sunnudaginn 27. ágúst
Fjölskyldudagur verkfræðinnar verður haldinn í fyrsta sinn í Húsdýragarðinum sunnudaginn 27. ágúst. Frítt í garðinn fyrir félagsmenn, maka og börn þeirra. Garðurinn er opinn kl. 10 - 17.
Þátttökulisti verður í móttöku og þar eru afhent armbönd til að framvísa í pylsuveislunni.
Vísindasmiðja Háskóla Íslands og Sprengju-Kata verða á staðnum frá kl. 12 -15.
Verða í skála við hliðina á veitingasölu garðsins.
Pylsuveisla fyrir félagsmenn VFÍ og fjölskyldur þeirra hefst kl. 12:30 á bak við skálann þar sem Vísindasmiðan og Sprengju-Kata verða.
Til að auðvelda undirbúning biðjum við félagsmenn að skrá þátttöku með því að Senda tölvupóst.
Vinsamlega tilgreinið nafn félagsmanns, fjölda fullorðinna og barna.
Vísindasmiðja Háskóla Íslands
Í farandsýningu Vísindasmiðjunnar eru í boði tilraunir, þrautir, tæki, tól, leikir og óvæntar uppgötvanir fyrir alla aldurshópa. Gestir geta meðal annars kynnst undraverðum eiginleikum ljóss, lita, hljóðs og rafmagns, teiknað listaverk með rólu, leikið á syngjandi skál, smíðað vindmyllu, mótað heillandi landslag og margt fleira. Öll fjölskyldan getur upplifað vísindin með lifandi hætti, uppgötvað og leikið sér af hjartans lyst.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla