• hr_kennari_nemendur

Háskólanám eftir iðnmenntun

Ný vefsíða HR.

22. jan. 2018

Háskólinn í Reykjavík hefur opnað nýja vefsíðu um háskólanám fyrir iðnmenntaða. Tilgangurinn með síðunni er að kynna fjölbreytta möguleika þeirra sem lokið hafa iðn- og tækninámi, til háskólanáms við HR. Á síðunni eru teknar saman upplýsingar um vinsælar námsbrautir í HR hjá fólki með iðnmenntun, leiðarvísir um hvaða inntökuskilyrði þarf að uppfylla fyrir mismunandi námsbrautir, ásamt reynslusögum nemenda sem sýna fjölbreyttan menntaferil nemenda í HR. 

Íslenskt atvinnulíf kallar eftir fólki með góða verkþekkingu og það er mikilvægt að benda ungu fólki á þá fjölbreyttu möguleika sem iðn- og tækninám veitir. Eftirspurnin á vinnumarkaði eftir einstaklingum með tæknigrunn og sérhæfingu úr háskóla er mjög mikil og á líklega enn eftir að aukast í framtíðinni. Því er vert að leggja áherslu á að iðnmenntun lokar engum dyrum varðandi áframhaldandi nám, heldur er þvert á móti góður grunnur fyrir áframhaldandi nám á háskólastigi.