Haustfundur Byggingarstaðlaráðs í samstarfi við VFÍ

Undirbúningur framkvæmda - Samræmd aðferð við gerð kostnaðaráætlana.

16. nóv. 2023

Byggingarstaðlaráð í samstarfi við Verkfræðingafélag Íslands boðar til haustfundar miðvikudaginn, 22. nóvember 2023 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 kl. 12:00 – 13:00. Fundurinn er öllum opinn.

Egill Viðarsson formaður Byggingarstaðlaráðs segir frá starfsemi ráðsins og helstu áskorunum. 

Umfjöllunarefni fundarins: Vandaður undirbúningur skilar sér í betri framkvæmd. Samræmd aðferð við gerð kostnaðaráætlana fyrir byggingar og almennar framkvæmdir

Dagskrá:

Fyrirlesari: Ólafur Ágúst Ingason verkfræðingur og sviðsstjóri hjá Eflu.
Um fyrirlesturinn: Góð kostnaðaráætlun er grundvöllur réttrar ákvarðanatöku í byggingar- og mannvirkjagerð enda markmið hennar að áætla endanlegan heildarkostnað verkefnis. Áætlunin er einnig grundvöllur ákvörðunar um hvort eigi að ráðast í verkefni eða ekki. Kostnaðaráætlun verður hins vegar aldrei betri en upplýsingarnar sem hún byggir á, þ.e. hversu vel umfang verkefnis hefur verið skilgreint þegar áætlunin er gerð. Hér á landi hafa þessi vinnubrögð við útfærslu kostnaðaráætlana ekki verið samræmd og á það við hvort sem um er að ræða almenna markaðinn eða opinbera verkkaupa.

Farið er yfir nýja nálgun við framsetningu kostnaðaráætlana byggða á útgáfum AACE (American Association of Cost Engineers) sem hafa það að markmiði að skapa sameiginlega skilning um hugtök og framsetningu. Búa til viðmið sem bætir yfirsýn verkkaupa og annarra haghafa ásamt því að auka rekjanleika framúrkeyrslu

Fyrirlesari: Þórunn Lilja Vilbergsdóttir lögfræðingur hjá HMS.
Um fyrirlesturinn: HMS – Breytingar á nýrri Byggingareglugerð.
Farið verður yfir helstu breytingar og áherslur sem unnið er að fyrir nýja Byggingarreglugerð.

Fundurinn er "Samlokufundur" og fá fundargestir samlokur og drykki án endurgjalds í boði Verkfræðingafélags Íslands.