• steinar_og_foss

Kjarakönnun VFÍ 2023

Mikilvægt tæki í kjarabaráttu.

10. apr. 2023

Kjarakönnun Kjaradeildar VFÍ stendur nú yfir og var send félagsmönnum í tölvupósti 10. mars. 

Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt. Könnunin er eitt mikilvægasta tæki VFÍ til að vinna að bættum kjörum verkfræðinga og tæknifræðinga.

Könnunin er mikilvæg undirstaða upplýsingagjafar fyrir launaviðtöl og fleira.

Félagsvísindastofnun HÍ sér líkt og áður um framkvæmd könnunarinnar. Kjaradeild VFÍ hefur ekki aðgang að svörum og ekki er unnt að rekja þau til þátttakenda. Það er auðvelt að svara. Það eina sem þarf að hafa við höndina er launaseðill fyrir febrúar 2023 (má nálgast í net/heimabönkum).

Þeim sem ekki hafa fengið könnunina er bent á að skoða vel ruslpóstinn og einnig flipana í gmail þar sem auglýsingapóstur lendir gjarnan. - Einnig má hafa samband í síma 535 9300 eða senda póst á netfangið kjaramal@verktaekni.is