Könnun: Staða félagsmanna á tímum COVID-19

Rannsóknarfyrirtækið Maskína sér um framkvæmd könnunarinnar.

10. jún. 2020

Nú er í gangi könnun meðal félagsmanna Verkfræðingafélags Íslands og er markmiðið að meta stöðu þeirra á tímum COVID-19. Hliðstæðar kannanir eru gerðar hjá systurfélögum VFÍ. Við hvetjum félagsmenn eindregið til að taka þátt. Það tekur einungis örfáar mínútur að svara könnuninni. Rannsóknarfyrirtækið Maskína sér um framkvæmdina fyrir hönd félagsins. Farið er með öll svör sem trúnaðarmál og þau eru ekki rekjanleg til einstaklinga. 

Niðurstöður verða birtar á vef Verkfræðingafélagsins þegar þær liggja fyrir.